Tilkynning um lokamót kjölbáta 2013
Lokamót kjölbáta 2013
7. september 2013
Siglingafélagið Ýmir
Keppt verður frá Reykjavíkurhöfn inn á Fossvog
Tilkynning um keppni
1. Reglur
Keppt verður samkvæmt:
- Kappsiglingareglum ISAF
- Kappsiglingafyrirmælum SÍL
- Kappsiglingafyrirmælum mótsins
2. Auglýsingar
- Auglýsingar verða leyfðar samkvæmt flokki C í Alþjóða kappsiglingareglunum
- Auglýsingar sem keppnishaldari útvegar kann að þurfa að sýna á bátum eða búnaði
3. Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.
4. Skráning
Skráningar berist til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 fimmtudaginn 5. september með tölvupósti á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda í áhöfn með skipstjóra, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.
Þó er hægt er að skrá allt fram að skipstjórafundi, en þá hækkar þátttökugjald.
Greiða má þátttökugjald inn á reikning 1135-26-6634 kt. 470576-0659 og senda tilkynningu á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
.
5. Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern áhafnarmeðlim verður kr. 800.
Gjaldið hækkar í kr. 1.200 ef skráning berst eftir kl. 21:00 fimmtudaginn 5. september.
6. Tímaáætlun
7. september:
Móttaka þátttökugjalds og áhafnarlista og afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 8:30 – 9:00
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki 9:55
Kaffiveitingar verða að keppni lokinni, innifaldar í þátttökugjaldi
7. Mælingar
Keppt verður samkvæmt IRC forgjöf og skal framvísa gildu mælibréfi fyrir alla báta.
8. Kappsiglingafyrirmæli
Siglingafyrirmæli verða afhent að morgni keppnisdags og birtast á heimasíðu Ýmis daginn áður.
9. Keppnisbraut
Keppt verður frá Reykjavíkurhöfn og inn á Fossvog móts við félagsheimili Ýmis.
Hafa skal eftirfarandi baujur á bakborða:
Akureyjarbauja, Suðurnes, Lambastaðasker og Hólmur
Hafa skal eftirfarandi bauju á stjórnborða:
Kerlingasker
10. Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða-kappsiglingareglunum.
11. Samskipti
Bátar skulu ekki hafa samskipti með farsíma eða talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum. Keppnisstjórn notar rás 6 til samskipta.
12. Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin og miðað við sex í áhöfn.
13. Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Ýmis strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.
14. Ábyrgð
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.
15. Tryggingar
Allir bátar skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu gagnvart þriðja aðila.
16. Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar fást hjá Friðriki Hafberg í síma 898 0855 eða með tölvupósti á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Siglingafélagið Ýmir
Naustavör 20, pósthólf 444, 202 Kópavogur
Sími: 554 4148
Kennitala: 470576-0659
Banki: 536-26-6634
Vefsíða: www.siglingafelag.is