Áramót 2016
- Details
- Skrifað laugardaginn, 17 desember 2016 19:59
,,Áramót kæna verður haldið 31. desember 2016
Siglingafélagið Ýmir
Keppt verður á Skerjafirði og innfjörðum hans
Tilkynning um keppni
1. Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a. Kappsiglingareglum World Sailing
b. Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c. Kappsiglingafyrirmælum mótsins
2. Auglýsingar
Eftirfarandi takmarkanir eru á auglýsingum keppenda: Bátar gætu þurft að sýna auglýsingar sem skipuleggjendur velja og láta í té.
3. Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.
Keppt verður í opnum flokki kæna og keppt eftir forgjöfum sem samþykktar hafa verið af SÍL.
4. Skráning
Skráningar berist til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 miðvikudaginn 28. desember með tölvupósti á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Taka þarf fram nöfn keppenda, seglanúmer og bátstegund og félag sem keppt er fyrir.
5. Þátttökugjald
Þátttökugjald er ekkert.
6. Tímaáætlun
31. desember:
Afhending/kynning kappsiglingafyrirmæla frá kl. 11:30 - 12:00
Skipstjórafundur kl. 12
Viðvörunarmerki kl. 12:55
Sigldar verða ein til tvær umferðir
Keppnisstjórn áskilur sér rétt til að ræsa ekki keppni ef ef vindur er undir 4 hnútum að meðaltali á keppnissvæði samkvæmt mælingum keppnisstjórnar.
Keppnir vera ekki ræstar ef vindur fer yfir 25 hnúta að meðaltali á keppnisvæði samkvæmt mælingum keppnisstjórnar. Keppnisstjórn áskilur sér réttindi til að lækka þetta mark ef hitastig fer undir 10°C og eða ef öldur eru háar að mati keppnisstjóra. Keppnir verða ekki ræstar ef skyggni kemur í veg fyrir að keppnisstjórn geti haft yfirsýn yfir keppnissvæðið.
Eftir keppni verður boðið uppá veitingar boði Ýmis
7. Kappsiglingafyrirmæli
Siglingafyrirmæli verða afhent fyrir skipstjórafund og stefnt er að því að birta þau á heimasíðu Ýmis daginn áður.
8. Keppnissvæði
Keppt verður á Skerjafirði og innfjörðum hans ef veður og hitastig leyfir.
9. Keppnisbraut
Keppnisbraut verður lýst í kappsiglingafyrirmælum.
10. Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða-kappsiglingareglunum.
11. Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin.
12. Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Ýmis strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.
13. Ábyrgð
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.
14. Frekari Upplýsingar
Frekari upplýsingar fást hjá Aðalsteini í síma 693 2221 eða með því að senda fyrirspurnir með tölvupósti á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Kranadagur og uppsátur
- Details
- Skrifað föstudaginn, 23 september 2016 17:52

Úrslit lokamóts kjölbáta 2016
- Details
- Skrifað mánudaginn, 05 september 2016 23:40
- Dogun...........0,839.....1:50:11.......1:32:26
- Sigurborg.......0,934.....1:40:00.......1:33:24
- Lilja...............0,972.....1:36:33.......1:33:50
- Íris................0,886.....1:46:17.......1:34:10
- Besta.............0,944.....1:42:03.......1:36:20
- Aquarius.........0,992.....1:40:39.......1:39:08
- Sigurvon.........0,942....1:46:50.......1:40:38
- Ögrun............1,001.....1:47:10.......1:47:10
- Ásdís..............0,823.....2:24:37.......1:59:01
Tilkynning um keppni - lokamót kjölbáta
- Details
- Skrifað mánudaginn, 29 ágúst 2016 23:46
Lokamót kjölbáta 2016
1. Reglur
Keppt verður samkvæmt:
a.Kappsiglingareglum ISAF
b.Kappsiglingafyrirmælum SÍL
c.Kappsiglingafyrirmælum mótsins
2. Auglýsingar
Eftirfarandi takmarkanir eru á auglýsingum keppenda:
Bátar gætu þurft að sýna auglýsingar sem skipuleggjendur velja og láta í té búnað.
3. Þátttökuréttur
Rétt til þátttöku hafa fullgildir félagar í siglingafélögum samkvæmt móta- og keppendareglum SÍL.
4. Skráning
Skráningar berist til keppnisstjórnar fyrir kl. 21:00 föstudaginn 2. september með tölvupósti á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
. Taka þarf fram nafn báts, nafn skipstjóra, fjölda í áhöfn með skipstjóra, seglanúmer, forgjöf og félag sem keppt er fyrir.
Þó er hægt er að skrá allt fram að skipstjórafundi, en þá hækkar þátttökugjald.
Greiða má þátttökugjald inn á reikning 1135-26-6634 kt. 470576-0659 og senda tilkynningu á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
.
5. Þátttökugjald
Þátttökugjald á hvern áhafnarmeðlim verður kr. 1000.
Gjaldið hækkar í kr. 1.500 ef skráning berst eftir kl. 21:00 föstudaginn 2. september.
6. Tímaáætlun
3. september:
Móttaka þátttökugjalds og áhafnarlista og afhending kappsiglingafyrirmæla frá kl. 8:30 – 9:00
Skipstjórafundur kl. 9:00
Viðvörunarmerki 9:55
Kaffiveitingar verða að keppni lokinni, innifaldar í þátttökugjaldi
7. Mælingar
Keppt verður samkvæmt IRC forgjöf og skal framvísa gildu mælibréfi fyrir alla báta.
8. Kappsiglingafyrirmæli
Siglingafyrirmæli verða afhent að morgni keppnisdags.
9. Keppnisbraut
Keppt verður frá Reykjavíkurhöfn og inn á Fossvog móts við félagsheimili Ýmis.
Hafa skal eftirfarandi baujur á bakborða:
Akureyjarbauja, Suðurnes, Lambastaðasker og Hólmur
Hafa skal eftirfarandi bauju á stjórnborða:
Kerlingasker
10. Stigakerfi
Notað verður lágstigakerfi samkvæmt viðauka A í Alþjóða-kappsiglingareglunum.
11. Samskipti
Bátar skulu ekki hafa samskipti með farsíma eða talstöð sem ekki eru aðgengileg öllum meðan þeir keppa nema í neyðartilvikum. Keppnisstjórn notar rás 74 til samskipta.
12. Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin og miðað við sex í áhöfn.
13. Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili Ýmis strax og úrslit verða ljós að lokinni keppni.
14. Ábyrgð
Allir sem taka þátt í mótinu gera það á eigin ábyrgð. Sjá reglu 4, ákvörðun um að keppa. Keppnisstjórn ásamt öllum þeim sem taka þátt í framkvæmd mótsins firra sig allri ábyrgð gagnvart tjóni sem kann að verða vegna þátttöku í mótinu.
15. Tryggingar
Allir bátar skulu hafa gilda ábyrgðartryggingu gagnvart þriðja aðila.
16. Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar fást hjá Ólafi í síma 865 9717 eða með tölvupósti á
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Siglingafélagið Ýmir
Naustavör 20, pósthólf 444, 202 Kópavogur
Sími: 554 4148
Kennitala: 470576-0659
Banki: 536-26-6634
Vefsíða: www.siglingafelag.is
Allar upplýsingar um Íslandsmótið
- Details
- Skrifað miðvikudaginn, 03 ágúst 2016 12:07
Alls hafa boriðst skráningar fyrir 41 keppanda á 36 bátum á Íslandsmót kæna sem fram fer hjá Ými um helgina.
Í samræmi við tilkynningu um keppni verður því keppt í fjórum flokkur: Optimisti A, Optimist B, Laser 4,7 og Opnum flokki. Í Opnum flokki munu keppa 29'er, Laser, Laser Radial og Topper Topaz.