Í vetur höldum við áfram siglingum með morgunkaffinu á laugardögum. Litlu kjölbátarnir verða á floti fram í lok nóvember, en þá tökum við bátana í land og förum í viðhaldsverkefni.
Til að undirbúa viðhaldið í vetur höfum við sett upp námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á því að taka þátt. Í þessu námskeiði kennum við undirbúning og vinnu með helstu efni sem notuð eru í viðgerðum, þá sérstaklega trefjaplastviðgerðir, gelcoat og topcoat efni auk viðhalds á utanborðsmótorum. Skráning á námskeiðið er í gegnum Abler verslunina okkar.
Vetrarstarfið verður síðan eftirfarandi:
Á sunnudögum eru sjóskátahópar Kópa með starf hjá okkur. Þetta er frábært framtak þar sem skátastarf og siglingar eru tvinnaðar saman. Skráning í þetta starf er í gegnum Abler, en starfinu er nánar lýst á vefsíðu Kópa.
Við munum vinna í viðhaldi á Gullu Grönnu í vetur (eftir jól). Markmiðið er að taka bátinn í gegn þannig að hún verði til fyrirmyndar eins og Sif. Gulla er einn af Secret 26 bátum sem Sigurbátar smíðuðu fyrir aldamót. Með góðu viðhaldi eru þessir bátar frábærir og snöggir kjölbátar sem við eigum að vera stolt af og því viljum við halda þessum bátum í góðu formi.
Það eru þónokkur tilfallandi verkefni sem við þurfum að fara í þar fyrir utan. Hópurinn sem tekur til hendinni (saumaklúbburinn) mun hittast á fimmtudögum í vetur
Með tilkomu brúarinnar yfir Fossvog gerum við ráð fyrir að starfsemi Ýmis þurfi að breytast og stór hluti hennar þurfi að færast úr stað. Í vetur munum við byggja upp nýja róðrarstarfsemi og halda áfram samtali við sveitarstjórnina í Kópavogi um uppbyggingu á svæði sem tryggir framtíð siglinga. Hér vantar okkur alla aðstoð þeirra sem vilja koma í lið með okkur
140 börn þátt í námskeiðinu "Leikur við sjóinn"
60 börn í námskeiðinu "Lærðu að sigla"
54 börn í framhaldsnámskeiðum í siglingum
28 í námskeiðinu "Lærðu að sigla" í opna aldursflokkinum. Hér sáum við foreldra og börn, unglinga og aðra sem vildu á vit ævintýranna.
36 fullorðna í kjöbátaáhöfnum
15 í kjölbátanámskeiðum
Eftir sumarið voru 164 skráðir meðlimir í Ými. Sumir hafa verið með okkur frá stofnun félagsins 1971, en við fengum yfir 40 meðlimi sem voru ekki skáðir í félagið í fyrra.
Til að gerast félagi í Siglingafélaginu Ými er hægt að fara beint inn á Abler síðu félagsins og borga þar félagsgjald (árgjald félagsins samkvæmt gjaldskrá).
Einnig er hægt að millifæra félagsgjaldið inn á bankareikning númer: 0536-26-006634 kt: 470576-0659. En þá verður að senda kvittun á netfangið skraning(hjá)siglingafelag.is með netfangi félagsmanns í skýringu.
Ef greitt er fyrir þriðja aðila þá þarf að senda okkur póst á sama netfang og taka það fram svo félagaskráin okkar sé rétt.